Glíma við ógnir af völdum náttúru, geislunar og tækni í hálfa öld
Ég lét af störfum vegna aldurs 30. júní 2025, starfaði síðustu þrjú árin fyrir hönd utanríkisráðuneytisins hjá Netvarnarmálasetri Atlantshafsbandalagsins í Tallinn, Eistlandi, NATO CCDCOE (Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence). Setrið er eitt öndvegssetra tengdum NATO, þar sem aðildarríki leggja fram vinnu fræðimanna á mismunandi sviðum. Ég var þar eini borgaralegi starfsmaðurinn á Aðgerðafræðasviði (OPS Branch), fámennu fræðasviði (að jafnaði um átta manns á þessu tímabili) um fræði hernaðaraðgerða (tengdum notkun Netsins) og varna gegn þeim.
Þann 20. janúar í ár (2026) tilkynnti setrið að mér hafi verið veittur heiðurstitillinn “CCDCOE Ambassador” vegna starfa minna fyrir setrið. Þennan titil bera nú sex manns. Vinna mín við að innleiða fræði um áfallaþol (e. resilience) inn í starf Aðgerðafræðasviðs var ein ástæða þess að titillinn var veittur. Þar skiptu miklu þriggja áratuga tengsl við helsta fræðimann á sviði áfallaþols (og beitingar á þeim fræðum), dr. Igor Linkov.
Um titilinn “Ambassador” og forsendur fyrir veitingu hans (sjá texta í kaflanum “Ambassadors” neðarlega á síðunni.
Stutt ágrip starfsferils míns af síðu CCDCOE
